Vörumerki
Olitalia
Olitalia er einn virtasti ólífuolíuframleiðandi Ítalíu. Olitalia framleiðir og selur olíur í fleiri löndum en nokkur annar eða til yfir 120 landa. Olitalia framleiðir ólífuolíur í ýmsum gæða- og verðflokkum. Flokkarnir eru extra virgin, pure og pomas, en að auki framleiðir fyrirtækið einnig ýmsar bragðolíur. Þá framleiðir fyrirtækið sérstakar ólífuolíur frá ýmsum héruðum Ítalíu sem gerir neytendum kleift að njóta mismunandi bragðs af extra virgin olíum eftir því hvaðan þær koma. Einnig framleiðir Olitalia vínberjakjarnaolíu, sólblómaolíu, hrísgrjónaolíu, grænmetisolíu auk ediks sem er í hæsta gæðaflokki.
Oerlemans
Oerlemans eru sérfræðingar í fersk-frosnu grænmeti, kartöfluvörum og ávöxtum fyrir stóreldhúsmarkaðinn og matvælaiðnaðinn. Vörumerkið er þekkt fyrir gæði hráefnis meðal fjölmargra notenda þess. Rannsóknir hafa sýnt að frosið grænmeti varðveitir oft betur vítamín og næringarefni heldur en ferskt grænmeti eftir að það er komið á markað. Oerlemans uppfyllir hæstu alþjóðlegu gæða- og öryggisstaðla og hefur hlotið úttektir á borð við HACCP auk þess að vera EKO, BRC og IFS löggiltir.
Fæði fyrir alla
Fæði fyrir alla var hóf framleiðslu á heilsuvörum árið 1982. Ananda Granóla og Ananda Musli voru fyrstu afurðirnar en fljótlega bættust við Nemendanart, Ávextir og hnetur og fleiri afurðir. Allt frá upphafi var mörkuð sú stefna að ávallt skyldi nota besta fáanlega hráefni í framleiðsluna. Lífrænt ræktað hráefni skyldi ganga fyrir í framleiðsluna ef það byðist á samkeppnishæfu verði.
Árið 1997 eignaðist Eggert Kristjánsson hf. fyrirtækið Fæði fyrir alla. Stefna fyrirtækisins hefur haldist óbreytt síðan þá. Aukin áhugi á hollustuvörum hefur tryggt velgengni framleiðsluvara Fæðis fyrri alla sem njóta vaxandi vinsælda.
Íslenskt Meðlæti
Íslenskt Meðlæti sérhæfir sig í að blanda og pakka frosnu grænmeti í neytendaumbúðir með smekk og þarfir Íslendinga í huga. Í dag framleiðir Íslenskt meðlæti 12 mismunandi tegundir af grænmeti og 4 tegundir af berjum undir merkjum Íslensks meðlætis auk sérpökkunar fyrir verslanir. Framleiðsla fyrirtækisins er staðsett að Sundagörðum 4. Íslenskt Meðlæti var stofnað árið 1992 en Eggert Kristjánsson keypti fyrirtækið árið 1997.