Saga Eggerts Kristjánssonar hf
Eggert Kristjánsson hf. var stofnað 4. maí 1922 af Eggerti Kristjánssyni stórkaupmanni. Megintilgangur fyrirtækisins var innflutningur á matvöru og búsáhöldum.
Fyrirtækið hefur stundað heildsöluviðskipti með ýmsar vörur í gegnum árin en fyrirtækið var þekkt fyrir innflutning á ferskum ávöxtum og grænmeti. Í áranna rás hefur fyrirtækið komið að ýmiskonar innflutningi eða allt frá ýmsum smáhlutum til fiskiskipa. Í dag er fyrirtækið að mestu í innflutningi á matvöru, hreinlætis og snyrtivöru fyrir verslanir og veitingarhús og er með mörg leiðandi merki á því sviði.
Frá því að fyrirtækið var stofnað hefur það verið í eigu fjölskyldu Eggerts Kristjánssonar en í dag er sonarsonur Eggerts Kristjánssonar Gunnar Aðalsteinsson framkvæmdarstjóri þess.
Stjórn fyrirtækisins skipa: Snorri Aðalsteinsson stjórnarformaður, Eggert Aðalsteinsson og Gunnar Aðalsteinsson.
Hjá fyrirtækinu starfa um 20 manns og er starfsemi þess að Sundagörðum 4, 104 Reykjavík.

Gunnar Aðalsteinsson
Eggert Kristjánsson
Aðalsteinn Eggertsson