Bocuse d'Or – landslið matreiðslumeistara

 

Bocuse d ´Or matreiðslukeppnin í Lyon í Frakklandi, sem akademian kennir sig við, er talin sterkasta einstaklingskeppni í matreiðslu í heiminum. Keppnin hefur verið haldin síðan 1987 og komast færri þjóðir að en vilja. Íslendingar hafa keppt í sex skipti og náð þeim góða árangri að vera á meðal tíu efstu í öll skiptin. Við höfum einu sinni náð 3. sæti sem gefur bronsverðlaun, tvisvar sinnum í 5. sæti, einu sinni í 7. sæti og tvisvar í 9. sæti. Eigendur akademiunar eru allir þeir sem keppt hafa fyrir hönd Íslands í Lyon ásamt fjórum eldri reynsluboltum úr faginu hér heima sem sjá um rekstur akademiunar. Bocuse d'Or er oft kölluð hin eina sanna heimsmeistarakeppni í matreiðslu.
Eggert Kristjánsson hf. styrkir Bocuse d´Or akademíuna á Íslandi.

 

Bocuse d'Or