Al'fez uppskriftir
Cous cous í papríku
Hráefni
1 pakki Al´Fez Couscous
1 stór rauð paprika
½ rauð paprika
½ græn paprika
½ gul paprika
½ rauðlaukur
2 hvítlauksrif, maukuð
1 msk Olitalia ólífuolía
Matreiðsla
Hitið ofninn í 180 gráður. Útbúið Couscousið eins og leiðbeiningar pakkans segja til um. Saxið paprikuna og laukinn, steikið í mauk-aða hvítlauknum og olíunni. Skerið stóru paprikuna og takið innanúr henni. Fyllið með steiktu grænmetinu og couscousinu. Bakið í 30 mínútur.
Tilvalið sem meðlæti t.d. með kebab og tahini kartöflusalati, fiski eða kjötrétti.
Undirbúningur: 10 mínútur
Eldunartími: 20 mínútur
Skammtur fyrir tvo
Falafel & grænmetis Tempura
Hráefni
1 pakki af Al'fez Falafel
250ml af köldu vatni
1 egg
½ blómkál
1 rauð paprika
1 græn paprika
300g smáar kartöflur
300ml grænmetisolía
Ferskt chilli og kóríander sem skraut
Matreiðsla
Þvoið og skerið grænmetið í munnbitastærð og sjóðið þar til að það er tilbúið. Þurrkið og kryddið með pipar og salti. Notið Falafel mixið, bætið í það eggi og vatni. Hrærið þar til það er mjúkt.
Hitið olíuna á stórri pönnu. Dýfið grænmetinu í Tempuramixið og steikið í u.þ.b. 30 sekúndur. Þurrkið á eldhúsbréfi til að fjarlægja auka olíu. Berið fram með Al´fez Houmous og eða Al´fez Tahini dressingu. Það má líka steikja brokkoli, eggaldin eða sveppi. Sömu aðferð má líka nota fyrir fisk eða rækjur til tilbreytingar.
Undirbúningur: 5 mínútur
Eldunartími: 20 mínútur
Skammtur fyrir: 4 (sem forréttur/snakk)
Grænmetisréttur
Harissa & sítrónu-
tígrisrækjur
Hráefni
12 tígrisrækjur
2 hvítlauksrif
1 tsk Al'Fez Harissa
1 fersk sítróna (skorin í helminga)
Olitalia ólífuolía til steikingar
Salt og pipar
Kóreander til skreytingar
Matreiðsla
Plokkið rækjurnar og hakkið hvítlaukinn smátt. Setjið smá olíu á steikarpönnu og hitið, setjið rækjurnar á pönnuna þegar olían er orðin heit. Steikið í 3 - 4 mínútur og snúið reglulega á meðan. Bætið hvítlaukinum saman við og steikið í 3 mínútur til viðbótar. Bætið Harissa saman við og eldið í eina mínútu til viðbótar. Setjið rækjurnar í skál og kreistið safan úr sítrónunni yfir.
Sáldrið smá salti og pipar yfir og skreytið með kóreander.
Undirbúningur: 10 mínútur
Eldunartími: 5 mínútur
Skammtur fyrir 2 (forréttur)
Kjúklingavængir með Harissa
Hráefni
8 kjúklingavængir
4 tsk af Al´Fez Harissa mauki
6 tsk tært hunangi
2 hvítlauksrif, maukuð
1 tsk Olitalia extravirgin ólífuolía
Matreiðsla
Blandið Harissa maukinu og hunanginu saman og þekið kjúklingavængina. Geymið örlítið til síðari nota. Steikið maukaðan hvítlaukinn í olíu á pönnu. Steikið kjúklinga-vængina á pönnu. Setjið meira af Harissa hunangsleginum á vængina. BBQ grillið vængina þar til þeir eru tilbúnir.
Setið örlítið af sítrónusafa yfir og berið fram með Al´fez Couscous.
Undirbúningur: 5 mínútur
Eldunartími: 10 mínútur
Skammtur fyrir 2-4